Wikidata/Spurt og svarað

From Meta, a Wikimedia project coordination wiki
Jump to: navigation, search
This page is a translated version of a page Wikidata/FAQ and the translation is 93% complete.

Other languages: Afrikaans 18% • ‎Arabic 32% • ‎Bengali 11% • ‎Catalan 25% • ‎Czech 29% • ‎Danish 100% • ‎German 100% • ‎Zazaki 25% • ‎Lower Sorbian 100% • ‎Greek 54% • ‎English 100% • ‎Esperanto 93% • ‎Spanish 100% • ‎Basque 0% • ‎Persian 100% • ‎Finnish 100% • ‎French 100% • ‎Gujarati 100% • ‎Hebrew 100% • ‎Upper Sorbian 100% • ‎Hungarian 96% • ‎Indonesian 100% • ‎Icelandic 93% • ‎Italian 100% • ‎Japanese 18% • ‎Korean 71% • ‎Luxembourgish 43% • ‎Macedonian 100% • ‎Malayalam 11% • ‎Norwegian Bokmål 39% • ‎Dutch 100% • ‎Polish 96% • ‎Portuguese 46% • ‎Russian 100% • ‎Albanian 4% • ‎Swedish 71% • ‎Swahili 11% • ‎Tamil 14% • ‎Telugu 4% • ‎Thai 100% • ‎Turkish 25% • ‎Ukrainian 100% • ‎Vietnamese 4% • ‎Yiddish 11% • ‎Simplified Chinese 100% • ‎Traditional Chinese 100%

Þetta er safn af algengustu spurningunum um Wikidata. Ef spurningunni þinni er ekki svarað hér, ekki hika við að hafa samband við Lydia fyrir frekari skýringar.

Contents

Hvert er markmið Wikidata? [edit]

Markmið Wikidata er að setja upp miðlægan gagnaþjón. Við það verður mögulegt að safna og miðla upplýsingum, til Wikipedia og þriðju aðila. Dæmi: Wikidata hefur upplýsingar um fæðingardag og nafn almannapersónu. Aðeins þarf að viðhalda þessum upplýsingum á einum stað, en hægt er að nota þessar upplýsingar á öllum Wikipedium og til annara aðila. Þetta er svipuð virkni og á Wikimedia Commons - en með gögnum í stað margmiðlunarskráa.

Hver eru tímamörk fyrir upphaflegri þróun Wikidata? [edit]

Upphafleg þróun Wikidata fer fram í þremur áföngum. Fyrsti áfangi mun bæta tungumálatengla. Annar áfang snýst um upplýsingasnið og mun gera notendum kleift að bæta upplýsingasnið með gögnum frá Wikidata. Þriðji áfangi snýst um lista, sjálfvirka gerð þeirra byggða á gögnum frá Wikidata, í stað þess að búa til og viðhalda þeim handvirkt.

Þú getur lesið meira um þessa áfanga, hvorn í sínu lagi í tæknilegum markmiðum

Fyrsti hluti teymisins byrjaði vinnu sína 1. mars 2012 og afgangur hópsins fylgdi eftir 1. apríl 2012. Áætlað er að verkefnið verði í vinnslu til enda marsmánuðar 2013.

Hvað vill Wikidata ná fram þegar verkefninu er lokið? [edit]

Wikidata stefnir að styðja við samfélög notanda og aðra sem vilja nota stóran gagnagrunn (til dæmis í forritum).

Í þeim þætti sem snýr að samfélögum notenda, er markmiðið að minnka fyrirhöfn við viðhald og hjálpa smærri Wikipedium. Minna viðhald skilar sér á tvo vegu: í fyrsta lagi, gögn sem eru notuð á mögum greinum þarf eingöngu að viðhalda á einum stað; og í öðru lagi mun sjálfvirk stofnun lista leiða af sér að ekki er þörf á því að búa til og uppfæra lista handvirkt. Við vonum að Wikidata geri smærri Wikipedium kleift að stofna sumar greinar.

Hverjar eru grunnforsendur og skilyrði fyrir Wikidata? [edit]

Lista yfir grunnforsendur og skilyrði er að finna hér.

Hvernig mun WIkidata breyta því hvernig greinum er breytt? [edit]

Þessi hluti verður fundin út við þróun í samstarfi við samfélagið.

Sú breyting sem hefur fyrst áhrif er að ekki þarf að breyta síðum til að viðhalda tungumálatenglum. Það leiðir af sér minni þörf fyrir margar vélmenna breytingar. Annar þáttur er að ekki þarf að viðhalda upplýsingasniðs gögnum í greinum. Það gerir texta greinarinnar stílhreinni: í stað fjölda slaufusviga í byrjun greinarinnar verður eingöngu vísun í sniðið, á þennan hátt {{infobox-city}}. Jafnframt gerir þetta breytingar á gögnum í upplýsingasniðum einfaldari: í stað þess að setja inn gildi fyrir hverja málskipan, verða til mun einfaldari eyðublöð.

Hver fjármagnar vinnuna á Wikidata? [edit]

Upphafleg þróun Wikidata er fjármögnuð með rausnarlegum fjárframlögum frá Allen Institute of Artificial Intelligence, Google, Inc. og Gordon and Betty Moore stofnuninni. Viðhald og rekstur Wikidata verður í framtíðinni í höndum Wikimedia á sama hátt og önnur verkefni lík Wikipedia og Wikiversity.

Hvernig get ég hjálpað til? [edit]

Það er nóg að gera svo hjálp þín er velkomin. Besta leiðin til að taka þátt er annaðhvort að senda tölvupóst á Wikidata póstlistann til þess að kynna þig eða koma á IRC rásina okkar #wikimedia-wikidataconnect á freenode. Við finnum út sameiginlega hvernig þú getur hjálpað til.

Meðal annars getur þú hjálpað með:

  • þáttöku í umræðu um tæknileg atriði (eins og gagnasöfn og svo framvegis);
  • skrifun kóða;
  • hjálp við samþættingu Wikidata á Wikipedium (bæði í tæknilegum og einföldum atriðum);
  • þáttöku í verkefninu þegar það verður sett á netið, til dæmis með því að bæta við og breyta upplýsingum.

Hvar eru nýjustu uppfærslurnar um verkefnið? [edit]

Þú getur fylgst með þeim miðlum sem eru nefndir í "Fylgjast með" hluta forsíðunnar til að vera með á nótunum um þróun verkefnisins.

Ég hef mikið af gögnum til að gefa. Hvernig geri ég það? [edit]

Það er gott að heyra að þú viljir gefa mikið af gögnum til Wikidata. Upphlöð í miklu magni af gögnum verða tæknilega möguleg, en hvort og hvernig þau verða leyfileg verður samfélag Wikidata að ákveða. Á fyrstu stigum verkefnisins er teymið hikandi að leyfa slíkt, því mikið magn gagna kallar á stórt samfélag til þess að viðhalda þeim. Hagsmunum Wikidata er best borgið með því að einblína fyrst á samfélagið og síðan á gagnasöfnum. Það mun gera það að verkum að Wikidata samfélagið getur stutt við gögnin til lengri tíma. Í millitíðinni, bættu sjálfum þér á þessa síðu og hjálpaðu öllum að ná yfirsýn yfir þau gögn sem þú ætlar að gera aðgengileg.

See also [edit]