Fund drives/2005/Q4 planning/Translations/Fundraising drive letter - is

From Meta, a Wikimedia project coordination wiki

(ang) (ar) (ast) (bg) (br) (ca) (cs) (cy) (da) (de) (en) (el) (eo) (es) (et) (fi) (fr) (gl) (hu) (he) (ia) (id) (it) (ja) (ko) (ml) (nap) (nl) (nn) (pl) (pt) (ro) (ru) (sc) (sk) (sl) (sh) (sr) (su) (sv) (th) (tr) (vi) (ua) (wa) (zh) edit


Mennt er máttur. Aðstoðaðu við að halda þekkingu frjálsri!
Knowledge is power. Help keep it free!

Wikimedia-stofnunin og þeir tugir þúsunda sjálfboðaliða sem láta tíma og sérfræðiþekkingu af hendi rakna til verkefnisins eru þeirrar skoðunar að mennt sé máttur og því ætti þekking að vera frjáls.

Rausnarleg framlög frá fólki eins og þér hafa gert Wikipedia kleift að verða stærsta alfræðirit heims. Fyrir aðeins nokkrum árum var wikipedia.org ekki einu sinni ein af hinum 10.000 mest sóttu síðum; í dag er hún á topp þrjátíu listanum með meira en 2,5 milljarða flettinga í nóvember 2005. Minna en hálf prósenta netnotenda notuðu wikipedia.org á hverjum degi á þessum tíma á síðasta ári. Sú tala hefur nú fjórfaldast og við reiknum með svipaðri aukningu á næsta ári. Með aðstoð þinni munu tugir milljóna til viðbótar nota Wikipedia og systurverkefni hennar á komandi ári.

Til að þjóna veldisvaxandi lesendahóp hefur fjárhagsáætlunin breyst og útgjöld hækkað úr $15.000 (900.000-1.000.000 króna) árið 2003, í $125.000 (8,1-8,2 milljónir króna) árið 2004 og í ár upp í $700.000 (45,5 milljónir króna). Á komandi ári mun Wikimedia-stofnunin verja milljónum í að svara eftirspurn, bæta hugbúnaðinn okkar og aðferðir til að tryggja gæði innihaldsins, og halda áfram að vinna að því markmiði okkar að veita öllum frjálsa þekkingu. Þetta hljómar óvænlega, en það gerði hugmyndin um að búa til heimsins stærsta alfræðirit á minna en fimm árum líka. Við getum gert þetta með aðstoð frá þér.

Tilvist Wikipedia og systurverkefna þess er undir framlögum komin: framlögum þeirra sem gefa tíma sinn og þekkingu til verkefnanna, og framlögum þeirra sem leggja verkefnunum fjárhagslegan stuðning. Á sama hátt og margar litlar breytingar hjálpa til við að byggja upp efni greinanna, þá hjálpa öll lítil fjárframlög okkur að miðla því efni. Meðalframlagið til okkar er um það bil 1000 krónur (um $20). Safnast þegar saman kemur!

Við snúum okkur til þín um hátíðirnar til að hjálpa okkur að koma þessu í gagnið. Það eru framlög þín sem gera okkur kleift að halda áfram að stækka og bæta okkur. Framlög til Wikimedia-stofnunarinnar getur verið í gjaldmiðli að eigin vali og eru skattfrjáls í Bandaríkjunum. Framlög til félagsstofnana í Þýskalandi og Frakklandi eru einnig skattfrjáls (Wikimedia Deutschland, Wikimedia France). Þrátt fyrir að við megum ekki nota framlög til félagsstofnananna beint fyrir Wikimedia-stofnunina, hjálpa þau við að ná sameiginlegum markmiðum okkar.

Nú er komið að því að aðstoða við að gefa heiminum frjálsa þekkingu.

Við þökkum fyrir örlætið!

Jimmy Wales, Florence Devouard, Angela Beesley, og aðrir liðsmenn Wikimedia.


Athugið: Fjáröflunin verður haldin frá föstudeginum 16. desember 2005 til föstudagsins 6. janúar 2006.