Skanwiki/Grein mánaðarins/12, 2015

From Meta, a Wikimedia project coordination wiki

is:Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn hefur það tvíþætta hlutverk að vera is:þjóðbókasafn is:Íslands sem safnar öllu prentuðu íslensku efni og auk þess is:háskólabókasafn en safnið á stærsta safn is:fræðirita á landinu. Safnið er is:bókasafn Háskóla Íslands og því er þjónusta þess við skólann skilgreind með sérstökum samningi. Þess utan er safnið öllum opið. Forstöðumaður safnsins hefur titilinn landsbókavörður.

Safnið var opnað is:1. desember is:1994 eftir sameiningu Landsbókasafns Íslands og Háskólabókasafns í Þjóðarbókhlöðunni sem stendur á Melunum í Vesturbæ Reykjavíkur nálægt is:Hringbraut.